nafnið.is (@nafnid_is) 's Twitter Profile
nafnið.is

@nafnid_is

Örnefnagögn gerð aðgengileg og leitarbær // Making Icelandic place-name records accessible and searchable // @arnastofnun @lethbridge_e @maggijoch

ID: 1187728586964381696

linkhttps://www.xn--nafni-mta.is calendar_today25-10-2019 13:52:27

36 Tweet

101 Followers

62 Following

nafnið.is (@nafnid_is) 's Twitter Profile Photo

Wow. The description for the farm-estate of #Húsafell in west Iceland contains 499 #placenames. That may be a record for the collection.

Wow. The description for the farm-estate of #Húsafell in west Iceland contains 499 #placenames. That may be a record for the collection.
nafnið.is (@nafnid_is) 's Twitter Profile Photo

Í örnefnalýsingu Staðarhrauns: „Heima í túni eru nöfn gleymd, ef einhver hafa verið. Það eina er sléttur blettur vestast í túni, sem nefndur er Ameríka. Þetta nafn gaf sr. Stefán blettinum, honum þótti hann langt í burtu - eins og Ameríka.” #America

nafnið.is (@nafnid_is) 's Twitter Profile Photo

Hraunhreppsafréttur: Til bana sultu 5 kindur í Svörtutindum eða Svörtutindagjá. Höfðu stokkið niður á stallinn, en ekki komizt upp aftur, hengiflug fyrir neðan. Fundust í fyrstu leit haustið 1924. Allar frá sama bæ, Seljum í Hraunhreppi

nafnið.is (@nafnid_is) 's Twitter Profile Photo

Guðrún Kristjánsdóttir, frá Illugastöðum, man eftir fólki sem bjó á Svínanesseli og kom sér upp geitum, til að hafa mjólk, því það átti ekki kú.

nafnið.is (@nafnid_is) 's Twitter Profile Photo

Brúðurin fór með fríðu föruneyti frá Kollsvík til Saurbæjar á undan brúðgumanum, sem kom á eftir með presti. Presturinn kom einn að bænum og sagði við hana: „Komdu sæl og blessuð, Guðrún mín. Alla daga kemur kvöld” og sagði henni að guminn hefði orðið bráðkvaddur í Brúðgumaskarði

nafnið.is (@nafnid_is) 's Twitter Profile Photo

Úr örnefnaskrá Rauðsstaða: ...hana bar ég undir Þórarinn Ólafsson á Patreksfirði, er hér bjó, en vafi er hvort á að taka breytingar hans til greina því hann sagði þrisvar í samtalinu „Guð veit ég segi satt.” En þá er almennt álitið að sannleiksgildi frásagnar hans sé einna minnst

nafnið.is (@nafnid_is) 's Twitter Profile Photo

Gljúfurá - svör við spurningum og viðbætur Gljúfurá var sú jörð, sem Jóni forseta Sigurðssyni var gefin, svo hann hefði rétt til að bjóða sig fram til setu á Alþingi 1844.

nafnið.is (@nafnid_is) 's Twitter Profile Photo

Í lýsingu Reykjahlíðar eru hvorki meira né minna en 1126 örnefni! Það er nýtt met, enda landmesta jörð Íslands.

Í lýsingu Reykjahlíðar eru hvorki meira né minna en 1126 örnefni! Það er nýtt met, enda landmesta jörð Íslands.
nafnið.is (@nafnid_is) 's Twitter Profile Photo

Þessi fallega teikning fannst aftan á uppdrætti fyrir Bót í Hróarstunguhreppi. Hermann Eiríksson, bóndi þar gerði bæði.

Þessi fallega teikning fannst aftan á uppdrætti fyrir Bót í Hróarstunguhreppi. Hermann Eiríksson, bóndi þar gerði bæði.