Ég trúi á að lög og reglur eigi að vera fólki til aðstoðar í krefjandi aðstæðum sem þessum. Ég trúi líka á að það verður að forgangsraða opinberu fé eftir mikilvægi.
mbl.is/frettir/innlen…
Mikið vona ég að hún verði bara tekin. Mest óþolandi íslenskt að það sèu tvær klukkur við sama torg og í þokkabót eru þær báðar vitlausar. Takk fyrir að hlusta. visir.is/g/20232503443d…
Sorgarfréttir að þessi meistarakona sé fallin frá. Kom með snillifyndni að vopni og fingur á lofti inn í einsleitt og heft samfélag þess tíma. Ég kvóta enn Baneitrað samband á Njálsgötunni sem ég las margoft en er nú ófáanleg. Hvíl í friði 🤎mbl.is/frettir/innlen…
Í dag var stærsta útlendingamáli Íslandssögunnar dreift á Alþingi. Efnahags- og viðskiptanefnd var með aukafund vegna risa aðgerða fyrir Grindvíkinga. Til umræðu voru umdeild lögreglulög. Fjölmiðlar mæta á staðinn og taka viðtal við Jakob Frímann um Alþingiskórinn.
Málum verður ekkert bara „hent í ruslið" eftir 1 ár því það er heimilt að framlengja rannsóknir í allt að 4 ár í viðbót ef rannsóknin er virk og nauðsynlegt að halda henni áfram. Ef þau skilyrði eru ekki uppfyllt þá á rannsóknin heima í ruslatunnunni. mbl.is/frettir/innlen…
Í pontu Alþingis var Kristrún Frosta að opinbera að það eina sem hún saknar úr kjarapakka ríkisstjórnarinnar eru skattahækkanir. Línur skýrast aldeilis.
Í pontu Alþingis var Sigmundur Davíð að atast enn og aftur út í upplegg útlendingalaganna sem sett voru árið 2016. Einhverjum finnst kannski áhugavert að vita að þegar það upplegg var ákveðið og unnið var Sigmundur Davíð reyndar forsætisráðherra.
Það gladdi mig þegar ráðherra svaraði fyrirspurn minni um bætta þjónustu Strætó á milli RVK og KEF með að starfshópur myndi skila tillögum fljótt. Þar sem ár er liðið og ástandið er enn til skammar fylgi ég þessu hér eftir í þeirri von að bæta megi þjónustuna sem allra fyrst.
Það er margt skynsamlegt í þessari grein. Svo má velta fyrir sér hvort núna sé komin meiri 'breidd' í umræðuna um réttindi sakborninga í ljósi nýlegra mála.
visir.is/g/20242633291d…
Það er ekki of seint að samþykkja eftirfarandi frumvarp til stjórnarskipunarlaga:
1. gr.
Við 1. mgr. 35. gr. bætast tveir nýir málsliðir: „Birgir Ármannsson skal vera einn þeirra. Falli Birgir frá skal sæti hans standa autt.“
Ætti að vera óumdeilt.
So I tried to build a tech company from Norway and here’s what happened:
1. Two years of building without almost any money/funding, better part of a year without salary
2. Raise VC and become one of Norway’s first unicorns
3. Face unrealized gains wealth tax bill of many x my
XD er eini flokkurinn með alvöru menntastefnu, aðgerðaráætlun þar sem lagður er grunnur að breytingum til að ná meiri árangri. Það væri einstakt að ná Jóni Pétri Zimsen, skólastjóra inn á þing til að fylgja þeim eftir með sinni reynslu #kosningar24
xd.is/menntamal
„Við erum löngu hætt að gera ráð fyrir réttlæti hjá íslenskum dómstólum“. Það er algjörlega óásættanlegt að ráðherra í ríkisstjórn, sem ber ábyrgð á framkvæmdavaldi landsins, tali með þessum hætti um íslenska dómstóla. Það er ekki aðeins óábyrgt heldur beinlínis hættulegt.
Reyndi að kjarna þetta fyrir X en birti í heild sinni af ótta við útúrsnúninga, kennslustund frá eldri herrum í Samfylkingu, óumbeðið kvöldkaffi og símtalaflóð.
Ef ríkinu tekst að selja allan hlut Íslandsbanka í yfirstandandi útboði verður "afslátturinn" til fjárfesta um 3 milljörðum króna meiri heldur en í útboðinu alræmda í mars 2022.