tilbúinn að skera ríkið úr snörunni og taka yfir tilboð landsbankans í tm. hyggst fjármagna kaupin að fullu með láni frá landsbankanum með þeim fyrirvara að tekjur tm standi undir afborgunum.
ef það væri ekki augljóst að svona tíst eru skrifuð til að sækja peninga úr vösum karla sem líður í alvöru svona (sbr. griftið í reply) þá væri auðvelt að vorkenna týpum sem bera sorgir sínar á torg með þessum hætti
já er það neyðarlínan? já hæ konan stendur hérna inni í stofu og er alvarlega að íhuga forsetaframboð. ekki lengi nei. hún ætlaði nú bara að skrifa undir meðmæli en byrjaði óvart að safna undirskriftum og veðraðist öll upp og nú óttast ég að hún láti slag standa
þetta heimsendablæti (næst) ríkasta manns heims er svo vanstillt; skotheldur bíll, internet í gegnum gervihnött, ferðir til mars og nú búinn að breyta þessum miðli í 4chan til þess að reyna að troða veruleikafirrtum rudda í valdamesta embætti heims á ný
2024 væbið er andlegt ferðalag sem má samt ekki þvælast fyrir spilafíkninni, hata lyfjafyrirtæki (þegar hentar) en elska fyrirtæki sem framleiða fæðubótarefni og fagna öllum skoðunum (ef þær eru ekki woke)
þegar ég fór að drekka minna, borða hollt og gera upphífingar fyrir 15 árum þótti það í mesta lagi nokkuð sniðugt en í dag væri það líkamlegt, andleg og vitsmunaleg vakning