Það er alltaf verið að tala um það þyrfti að vera venjulegur einstaklingur að keppa við íþróttafólkið og svo þegar það gerist og áströlsk kona dansar eins vel og hún getur og þá er bara gert grín. Hvað viljið þið eiginlega
Ef það er hægt að gera göng fyrir bílaumferð á Miklubraut ætti að íhuga að gera göng fyrir almenningssamgöngur og hjólandi. Það eru allavega samgöngumátar framtíðarinnar.
Flestir íslenskir fjölmiðlar virðast líta á það sem hlutverk sitt að benda fólki á hver sagði hvað (oft hver skrifaði hvað á Facebook) og þar við situr. Bara segja að þessi sagði þetta og hinn sagði hitt og að þeir séu ósammála. Búið.
Spyrja spurninga? Benda á kjaftæði? Niiiiii.
Fólk sem trúir því að gervigreind sé í einu og öllu lausnin við framtíðinni og muni gjörbylta hverri einustu starfsgrein, hugsun og framkvæmd mannskepnunnar er einhvern veginn með nákvæmlega sömu orku og gæjar sem borða bara kjöt í öll mál.
Hugsið ykkur að borgarstjórnarflokkur Sjálfstæðisflokksins sé búinn að losna við Eyþór Arnalds og nokkrar aðrar fáránlegar fígúrur en líti samt ennþá út eins og troðfullur trúðabíll.
Þetta er nú grátlega fyndið miðað við tryllinginn í Davíð á síðum Mogga. Hann var ekki bara meiri "orlofssuga" heldur kom hann á kerfinu að greiða borgarstjóra fyrir ótekið orlof.
visir.is/g/20242614518d…